Hver er ég... stiklað á stóru :D

  • Nafn: Lína Gautzen
  • Netfang: ellavalla@hotmail.com
  • Staður: Heyrðu það er Hafnarfjörðurinn city... ekki missa ykkur samt með brandarana ;)
  • Atvinna: Einn af ómissnadi hlekkjum í Nóatúns keðjunni :D
  • Hjúskaparstaða: Single and "dating" held ég allavega... er samt ekki viss :/
  • Um mig: Humm, í fáum orðum sagt þá er ég bara snillingur út í gegn... þú getur spurt hvern sem er... er alveg meiriháttar fyndin og er trú vinum mínum... alltaf til í gott og skemmtilegt djamm með meiriháttar skemmtilegu fólki = sum sé allir vinir mínir :D ... sum sé þá er ég hrein snilld út í gegn :D Alveg satt... það segjir mamma mín að minnsta kosti :D
  • Annað: Milan Baros er minn maður, eini karlmaðurinn allavega sem hefur aldrei sært mig og hann mun alltaf vera minn eini sanni :D

Auglýsing

Könnun

Á ég skilið að verða hamingjusöm?

tilefni til að blogga.... held það bara :D

08. september 2008 klukkan 22:23
Sæl verið þið.. hvernig hafið þið það svo?

ég er tiltölulega slök... nema kannski sú staðreynd að ég er ekkert svo svakalega hrifin af þessum tvem vikum sem eru að verða búnar, sem betur fer, eins og allir vita þá eru liðin tvö ár síðan að Unnur Bettý yfirgaf þennann heim og ég á erfitt með þennan tíma... frá 28 ágúst til 10 september... þannig að eftir þessa viku þá verð ég kannski hressari en ég hef verið undanfarið.... finnst ekkert eins þægilegt eins og að vera bara heima að kúra fyrir framan tv eða tölvuna og helst ekki hugsa neitt og vil ekki gera neitt... spes þar sem þetta er ég...

nú en þið vitið að ég er flutt í 220 :D sum sé Hafnarfjörðinn og þessi íbúð er æði... minnir mig pínu á sveitina... það marrar nefnilega aðeins í gólfinu fyrir framan herbergið mitt og ég dýrka það, finnst eins og ég sé heima hjá mér

en allavega þá bý ég með Söru og Dísu og þær eru bara hreinasta snilld... geðveikt gott að búa með þeim get ég sagt ykkur... þannig að ekki taka þær frá mér... :D

en allavega þá er ekkert svo rosalega mikið að frétta af mér.. held að þetta séu stærstu fréttirnar sem ég luma á

eru samt tiltölulega stórar

eða er það kannski ekki??

svo það sem er sorglegt.... Danni er fluttur til Noregs :(  og það er sko svekk dauðans... hann er nefnilega einn af bestu vinum mínum.... alveg magnað hvað sumir gefa smeigt sér inn að beini hjá mér og setið þar sem fastast... svo þegar það fer í burtu þá er eins og ég sé að missa hluta af sjálfri mér... frekar spes verð ég að segja.... nú en allavega þá sakna ég hans smá pínu.... ok kannski mikið :/

en allavega þá verð ég bara að koma því að ég dái og dýrka fjölskylduna mína, hún er án efa sú allra besta familía sem ég gæti hugsað mér. Þessi skilyrðislausa stoð og stytta sem þau hafa reynst mér mun ætíð vera mér ómetanleg og ég virkilega vona að ég muni geta endurgoldið þeim það einn daginn... elska ykkur öll!

Runi minn er búinn að hjálpa mér alveg rosalega mikið og hann fær mínar allra mestu og dýpstu þakklætistilfinningar sem ég er fær um að framkvæma :D love you to man :)

awww... núna verður hann vandræðalegur þegar hann les þetta... þar að segja ef einhver les þetta ennþá... er búin að vera að velta því fyrir mér hvort einhver komi hingað inn lengur... allavega þá er ég ekki mikið vör við það.... en hey.... skítur skeður

en allavega þá vildi ég bara setja einhverjar línur hingað inn (og þá er ég ekki að tala um mig haha)

þannig að ég vona að einhverjir kvitta fyrir sig... þar að segja þeir sem lesa ennþá það sem ég hripa hingað niður á blað/skjá... eða eitthvað

en kveð í bili
Gautzenin

e.s.  er komin með nýja könnun... jey to me ;)

Ekki panikka gott fólk... ég að blogga... enda kominn slatti langur tími síðan síðast...

28. júní 2008 klukkan 13:38
Jæja jæja jæja.... sæl verið þið.....

ég veit að það er frekar langt síðan að ég bloggaði síðast en hey... betra seint en aldrei :D
það er ekkert svo mikið búið að gerast hjá mér undanfarið... annað en að ég er ekki lengur í sveitinni, ég er búin að kaupa mér nýtt rúm, ég hélt ansi magnaðslega vel uppá afmælið mitt og ég elska ykkur öll sem komuð í afmælið mitt.... sjæsinn hvað það var klikkaðslega gaman :D

nú allavega þá kom ég í bæinn aftur einhvern tímann í maí.... man engann veginn hvaða dag það var... man bara að ég fór á djammið á laugardagskvöldinu með Heiðu, snúllunni minni, og fór svo suður, þunn (aldrei þessu vant), á sunnudeginum... þetta virðist há mig frekar mikið.... annað hvort keyri í þunn norður eða suður..... frekar spes.... spurning um að fara að slaka aðeins á djammruglinu í mér :/ allavega eftir síðustu helgi :D

nú allavega þá fór ég í smá barbeque veislu til thelmu minnar núna um daginn og þar var sko borðað alveg dýrindismáltíð..... hún er ekkert svo slæmur kokkur skvísan ... þannig að takk kærlega fyrir mig með það og svo sama kvöld (auðvitað, ég er svo busy manneskja) fór ég í útskriftarveislu til Laufeyjar, frænku minnar, sem var að útskrifast með BA (minnir mig, ég er ekki beint sú minnugusta) í lögfræði frá HÍ... og ég er svo ógó stollt af henni að hafa afrekað þetta og svo er hún að fara í meira nám núna í haust og það er bara æðislegt hvað henni gengur svakalega vel.... og hún er skyld mér svo hún er gullfalleg (audda) og gáfuð.... banvæn blanda, það er það eina sem ég get sagt.... banvæn blanda :D

nú allavega þá var þetta viku fyrir afmælið mitt og alla síðustu viku var ég að farast úr tilhlökkun til afmælisins míns og ég er ekki að grínast með það en venjulega þegar maður gerir svona svaðalegar væntingar til einhvers þá verður það aldei neitt eins skemmtilegt eins og maður var búinn að gera væntingar til í hausnum á sér en þetta djamm sló öll met og ég vil þakka Dóra, Elínu Ósk, Bryndísi, Helga bónda, Nonna, Minnie, Konna, Nínu, Söru, Sæma, Sibbu, Snævari, Steinari, Þóreyju, Runa, Ingó, Egle, Mandas, Helga, Kalla, Huldu og Óskari fyrir alveg æðsilegt og skemmtilegt djamm í tilefni af afmælinu mínu.... með þessu sést hverjir eru vinir manns og hverjir ekki... en svo komust sumir ekki vegna veikinda :(   og það var ömulegt.... sérstaklega þar sem skilaboð sumra um að þeir kæmust ekki komust ekki til skila þannig að ég hélt á þeim tímapunkti að sumir væru bara að beila á mér... en það kom annað í ljós... reyndar voru nokkrir sem beiluðu á mér algjörlega og ég vil bara segja þeim frekar pent út að það var alls ekki nógu sniðugt því ég var búinn að bjóða 30 manns og ég þarf að borga fyrir 30 manns en við vorum 23 sem vorum í afmælinu mínu og þar af leiðandi mun ég þurfa að borga 14.000kr fyrir ekki neitt... þannig að takk kærlega fyrir það.... þið skuldið mér :/

nei ég segji nú bara svona en samt finnst mér bara eðlilegt að þeir sem boðuðu forföll á síðustu stundu ættu að borga mér til baka... en það er bara ég... skiptir ekki máli, ekki fá samviskubit yfir þessu :D

nú allavega þá var brallað ansi mikið þetta kvöld, við grilluðum öll saman um kvöldið og borðuðum í veitingasalnum og uppi í stóra salnum þar sem við vorum mestmegnis :D

eftir að við vorum búin að borða var komið sér vel fyrir á einu löngu borði þar sem ákveðið var að Ingó rulemaster myndi búa til einhverjar seiðandi reglur fyrir drykkjuleikinn ógurlega sem var svo farið í þegar reglurnar voru komnar í gegn.
nú... þannig að allir settust við borðið og voru vel klifjuð af áfengi svo enginn myndi verða alkohóllaus í miðjum leik því það gengur engann veginn í drykkjuleik :D

allavega þá var byrjað og heppna manneskjan ég var nýbúin að opna smirnoff og fékk áttu sem þennan daginn þýddi að ég væri hóran... sum sé ég átti að gera allt sem mér var sagt að gera.... í stuttu máli sagt... ekki gaman.... mér var skipað að klára flöskuna.... en það var svo sem allt í lagi þar sem Runi fékk fimmu og fékk karókí og þar af leiðandi átti ég að syngja með honum og hann mátti taka hvern sem er með sér... sum sé ég og Runi og Helgi bóndi tókum lagið man, I feel like a woman... HAHAHAHA .... mesta snilld sem ég veit um.... nú allavega þá héldum við bara áfram að drekka og svo um ellefu eða hálftólf komu Sæmi, Steinar og Kalli á svæðið.... soldið seint en það meikaði alveg sens þar sem ég skrifaði víst ekki leiðbeiningarnar alveg rétt niður :D  ég veit, ég veit.... ég er algjör ljóska :D
en þeir komust þó á leiðarenda og það er það sem skiptir mestu máli :D

allavega þá héldum við bara áfram að syngja, dansa og drekka og fíflast og láta eins og bavíanar.... en eins og flestir hafa séð á myndunum sem eru á síðunum okkar sem voru með myndavélar þarna þá var þetta frekar villt og bilaðslega skemmtilegt kvöld :D

nú hins vegar þá misstum við okkur ansi vel um nóttina í grunnskólaleikjum og fórum nokkur í flöskustút.... ég veit.... flöskustút.... en það voru sum sé ég, Bryndís, Elín Ósk, Nína, Hulda, Snævar, Sæmi, Steinar og Óskar sem vorum í þeim leik og ég á ekki til orð.... þið vitið ábyggilega framhaldið :D  en þetta var geggt skemmtilegt og sumir kyssa greinilega betur en aðrir :D

allavega að mínu mati :D

en svo var farið að sofa eitthvað uppúr 6 um morguninn eða allavega flestir ;)

segji ekki meira um það....

en þetta var svo bilaðslega gaman elsku bestustu bestu vinir mínir.... og ég þakka ykkur fyrir frá mínum innstu hjartarótum.... vá talandi um væmna kveðju... jeremías minn eini sanni

en allavega þangað til næst þá bið ég að heilsa ykkur öllum :D

með kveðju úr bænum a.k.a. Kópavogi
Gautzenin

ó sveitin mín... ó sveitin mín... svo yndisleg og friðsæl!

17. maí 2008 klukkan 20:39
Sæl eina ferðina enn elskurnar mínar...

jæja þá er sumarfríið mitt við það að verða búið :( geggt ömulegt verð ég að segja.... er varla komin hingað norður í sveitina þegar ég þarf svo að fara aftur suður :/
mér finnst það svo geggt ömulegt að það er ekki einu sinni fyndið... sakna samt vinnufélaganna hroðalega mikið, þannig að það er kannski ekkert svo hroðalegt að vera að fara aftur suður... finnst bara svo endalaust leiðinlegt að keyra að það er ekki einu sinni fyndið, sérstaklega þar sem ég verð ein í bílnum.... en þá blastar maður bara græjurnar í botn og missir sig aðeins í söng og solleiðis :D

þannig að það er kannski bara jákvætt að ég sé bara ein í bílnum... allavega þá fékk Kobbi far með mér norður síðustu helgi og ég held að hann hafi verið búinn að fá nóg af mér og mínu góli :D hehe

en allavega þá er bara búið að vera gaman hjá mér þessa vikuna.... sauðburðurinn gengur ágætlega svo sem, stórgróði hjá mér eins og alltaf :D ég á bara gæða skepnur, hef alltaf haldið því fram :D

en allavega þá er ég bara búin að vera geggt dugleg þessa vikuna, vakna um miðjar nætur til að kíkja á féð og það er ekkert svo svakalega gaman, sérstaklega þegar það er hrollkalt úti... ekkert gaman að vera sofandi, vakna og fara út hálffreðin enn og vá hvað maður fær mikinn hroll... án gríns, ef geirvörturnar væru ekki áfastar á manni þá hefðu þær pottþétt dottið af.... sjæsinn eini sanni

en allavega þá kem ég í bæinn á morgun, vonandi ekki seint þannig að ég hitti eitthvert af ykkur þá

en þangað til næst
Gautzen er yfir og út ;)

e.s. og talvan mín er komin úr viðgerð :D JEY!!!

Hey.... ég er víst lifandi ennþá.... en það eru skiptar skoðanir á því :)

28. apríl 2008 klukkan 20:20
Sæl verið þið krúttin mín... langt síðan síðast ég veit.... allt of langt... mikið búið að ganga á síðan ég skrifaði eitthvað hingað inn.... en það er bara svona þegar talvan manns ákveður að gefa upp öndina algjörlega :(
þannig að ég er ekki búin að hafa tölvuna mína í meira en mánuð og það hefur bitnað á sambandi mínu við ykkur, sem er bara algjörlega glatað.

nú eins og ég sagði hérna fyrst þá er mikið búið að ganga á síðan ég skrifaði eitthvað hérna síðast... eins og til að marka páskarnir fyrir norðan, sem var bara gaman... ef maður mínusar þynnku dauðans á páskadaginn sjálfann... úff.... mér verður bara illt við að hugsa um það :(

en allavega þá voru páskarnir bara snilld út í gegn.... og eins og hefðin segjir til um þá var auðvitað pínu samkvæmi heima hjá runa mínum sem ég stóð fyrir.... spáið í því að eiga svona æðislega systur eins og mig... koma í heimsókn norður til bróður síns og bjóða svo bara fólki í partý og alles :D god he must love me :) en allavega það var bara svo brilliant gaman.... mikið drukkið, ansi mörgu deilt með öðrum, missniðugu samt... vona bara að ákveðnir aðilar séu farnir að rata í rétt göt, segji ekki meira en það :D hehe
en allavega þá voru það ég, runi, signý, danni, bryndis, halla, helgi, nína, guðmann og valdi sem byrjuðum páskadjamm 2008 þetta kvöld heima hjá runa og það var svo gaman... takk æðislega og yndislega mikið krúslurnar mínar fyrir bara geggt djamm....
nú síðan uppúr 12 var farið af stað á ball með á móti sól í félagsheimilinu og var algjört rán að fara þangað.... 3000kr miðinn takk fyrir nokkuð pent... ég gapti líka næstum því... vá hvað þetta var dýrt.... en það var samt vel þess virði þar sem það var svoooooo gaman.... sumir skemmtu sér betur en aðrir.... þar að segja ég.... en runi minn varð eitthvað slappur snemma í mallanum og fór heim :)
en það er önnur saga.... saga sem maður segjir bara í fjölskylduboðum :) hehe

nú síðan var hrökklast heim einhvern tímann þegar ballið var búið... man ekki alveg hvað klukkan var en það sem skiptir mestu máli er að ég vaknaði allavega heima hjá mér... svo ég hlít að hafa rambað rétta leið :D

en daginn eftir vildi ég að ég hefði aldrei farið neitt... jeremías eini sanni.... vá hvað ég var ónýt eftir þetta... þynnka dauðans sem bankaði á hausinn á mér morguninn eftir.... vá.... og elskan hann Dóri var svo æðislegur að hringja í mig eitthvað um 9 um morguninn og ekki varð ég mjög sátt með það... þannig að takk (eins kaldhæðið og ég get) þannig að hann var ekki besti vinur minn þann morguninn þar sem ég náði ekki að sofna aftur :(

nú allavega þá þurfti maður svo að mæta heim til mömmu í mat og það var ekki beint það allra auðveldasta... þynnri en andskotinn mætti ég heim.... mygluð eins og rotið hræ og planið var hjá mér að leggja mig bara fyrir matinn en mamma hafði nú annað á prjónunum.... þau heima eru núna að breyta eldhúsinu algjörlega og ég fékk það skemmtilega verkefni að hanna eldhúsið í tölvunni.... ekki það besta þegar maður er þunnur.... en það hafðist.... á endanum.... minnir mig allavega.... man frekar lítið eftir þessari helgi.... það var bara svo geggt gaman....

en svo voru páskarnir búnir og þá þurfti maður að taka sig til og driva suður aftur... en það hafðist og lífið tók sinn vanagang

síðan núna um helgina þá var aðeins skroppið á djammið á laugardaginn.... var reyndar send heim úr vinnunni á föstudaginn... en þegar ég vaknaði á laugardaginn var ég mikið hressari þannig að ég ákvað að skreppa aðeins og skemmta mér.... var ég búin að bjóða nokkrum heim til mín í smá fyrirpartý áður en hópurinn myndi fara af stað á Broadway... nú allavega þá var byrjað að drekka hérna um 7 og svo var haldið á broadway rétt fyrir 11 en það var bara svo glatað þar þannig að við fórum bara aftur heim til mín og héldum áfram að drekka þar og fórum svo niður í bæ... en ég fór einhvern veginn að því að týna öllum þar en það skipti ekki neinu máli... ég fór á hressó til að skemmta mér og kynntist þar fullt af fólki sem ég man reyndar varla hvað heita... en allavega þá kom ég heim um 5 um morguninn og fór að sofa..... náði að sofa til svona 7 og vaknaði þá og byrjaði að hósta... og svo hóstaði ég aðeins meira og svo aðeins meira... þannig að ég svaf svo gott sem ekkert.... þannig að ég hélt að ég væri að deyja í gær þar sem ég var orðin frekar mikið veik.... farast í hálsinum og hausnum... og svo alls staðar þar sem ég er búin að hósta svo geggt mikið að mig verkjar út um allt :( frekar mjög svo glatað og leiðinlegt... en allavega þá vil ég þakka Sibbu, Sigrúnu, Danna, Nínu, Söru, Leó, Þórey, Agli, Búffa, Möggu og alezander fyrir brilliant gott partý heima hjá mér :D
það versta er að ég þarf að þrífa eftir það :/ en það mun ekki vera framkvæmt fyrr en ég fer að hressast...

en allavega þá veit ég ekki hvað ég á segja meira... held að þetta sé að verða alveg ágætt hjá mér í bili allavega....
en ég heyri í ykkur seinna elskurnar mínar

Gautzeninn kveður

e.s. takk elsku Danni fyrir að lána mér tölvuna þína svo ég komist á netið :*

Ást er eitt það allra ofmetnasta fyrirbæri sem ég veit um!!!

17. mars 2008 klukkan 18:27
Sæl verið þið litlu labbakútarnir mínir :D

nú eins og gefur að skilja þá er marsmánuður búinn að vera ansi skemmtilegur og virkilega leiðinlegur í leiðinni :/
árshátíðin var bara skemmtileg eins og gefur að skilja þar sem ég mætti á hana þá gat það auðvitað ekki klikkað..  svo skrapp ég til Kristínar og Kára á föstudagskvöldið síðasta og spjallaði aðeins við þau og fór svo í partý til Steinars og var það svo sem allt í lagi, róleg stemmning yfir hópnum og var aðallega setið og spjallað (og drukkið) allt kvöldið, kom heim eitthvað rúmlega 5 og fór og grenjaði mig í svefn (ástæðan neðar á færslunni)......... anyways þá var karíókípartýið hjá Dóra núna um helgina og vá það var svo gaman að það er ekki einu sinni fyndið... reyndar er það smá fyndið þar sem ég er með mestu og verstu strengi dauðans sem ég hef á ævi minni fengið og það eru sko mörg ár sem ég hef til viðmiðunar :/  við erum að tala um það að ég á virkilega erfitt með að hreyfa mig :D
þannig að strengjabrúður eru með minni strengi en ég í augnablikinu :)

aðal ástæðan fyrir strengjunum er sú að ég stoppaði ekki í partíinu, ég settist svo gott sem ekkert niður.... ég var út um allt, syngjandi, trallandi, hlaupandi á sumum tímapunktum og dansandi eins og biluð manneskja og það var svo gaman... ég hef aldrei hlegið eins svakalega mikið og um helgina... þannig að Nonni þú misstir af geggjuðu djammi :D

en allavega þá fór ég á laugardaginn á Iðufell og við skulum bara segja að ég hætti að drekka um áttaleitið í gærmorgun :D og fór heim seinnipartinn í gærdag og sofnaði um 6 leitið í gærkvöldi og svaf til 7 í morgun... ég var líka ansi vel búin á því :D  og þetta var bara brilliant... mun setja myndirnar inná myspaceið mitt í dag eða næstu daga. :D

en allavega þá var þetta samt ekki góð helgi líka þar sem ég og Oddur hættum saman og hann flutti út á föstudaginn.... ástæðan er ákveðið atriði og ef einhver er að deyja úr forvitni þá skuluð þið bara hringja í mig eða Odd og spyrja okkur.... ég ætla ekki að setja ástæðuna hingað inn :(

nú en þá er þetta allavega komið í bili það sem mig langaði að tjá mig um þannig að ég kveð ykkur í bili

Gautzen er yfir og út

e.s. Ég vil þakka Dóra fyrir að halda brilliant partý og Grjóna, Silju, Huldu, Ingó, Gísla og Óla fyrir geðveikt gott djamm á Iðufelli :D

e.e.s.  Dóri: hvernig væri nú að elda smá kjúkling og pitsu fyrir mann :D  hehehe

Að vera fædd ljóska hefur sinn toll :/

19. febrúar 2008 klukkan 20:11
Sæl verið þið elskurnar mínar!!

Eins og fyrirsögnin gefur til kynna þá er ég ansi sniðug stundum og geri stundum heimskulega hluti.... eða kannski meira svona ljóskulega hluti eins og að setja í þvottavél :D

Eins og þetta segjir eiginlega í sjálfu sér þá var ég geggt dugleg á sunnudaginn og setti í þvottavél sem er ekki frásögu færandi þar sem ég er ansi dugleg með það en allavega þá fór það ekki alveg eins og ég var búin að plana.....

nú svo ég segji nú alla söguna þá var ég að þvo rúmföt... dökk sængurver og dökkt lak.... nema fyrir þær sakir að lakið var svona dökkblátt og frekar nýtt, en ég var samt búin að þvo það áður, en allavega þá getum við sagt að ég eigi núna ansi fallega fáranlega blá rúmföt því lakið litaði ekkert nema smá geggjað mikið þannig að fallegu brúnu rúmfötin mín eru orðin ansi spes blá með smá brúnni slykju.... ekki fallegt verð ég að segja :/

ég veit hvað þið hugsið... ég er svo mikill kjáni og silly billy að það er reyndar smá fyndið... allavega þá hló ég frekar mikið þegar ég tók úr vélinni og sá afrakstur dagsins ansi skrautlegann :D

en nóg um mig.... hvað er að frétta af ykkur.... ???
hef ekki heyrt í flestum ykkar alveg heillengi en það er svona þegar maður er langt í burtu frá sumum og stutt frá hinum.... reyndar skiptir það ekki máli hvar ég er... af einhverjum ástæðum tala ég ekki mikið við ykkur... fúlt af minni hálfu finnst mér allavega en það er um að gera að fara að bæta aðeins úr því... þar að segja þegar ég verð búin að laga tölvuna mína svo ég geti verið eitthvað á msn.... en talvan mín er dáin... RIP... en það mun lagast vonandi bráðlega :D

nú en svo ég geti sagt ykkur aðeins meira af mér þá hlakkar mig ekkert smá mikið til páskanna.... er svo gott sem búin að redda mér fríi 22 mars (daginn fyrir páskadag) og þá get ég verið fyrir norðan um páskana og skemmt af mér rassapípholuna með ykkur öllum sem eruð fyrir norðan, nema Lína mín þar sem hún verður eitthvað að útlendast fram á sumar :(   en hins vegar þá verður bara tekið villt og tryllt djamm á Húnavökunni í staðinn :D .... en er einhver ykkar búin að frétta hverjir verða að spila á páskaballinu??? anyone.... please.... I'm reaching out to you people... :D

en mars er ansi vel planaður hjá mér... árshátíðin í vinnunni er 8 mars og mig hlakkar geggt til þar sem ég er að spá í því að leiga/kaupa (kannski) geggjaðann samkvæmiskjól og vera í honum á árshátíðinni... vera pínu svona celebrity red carped feeling.... hvernig er sú hugmynd hjá mér??

anyway svo er ég að spá í því að mæta á smá karíókí djamm hjá einum vinnufélaganum mínum helgina fyrir páskana og svo er páskadjamm.... þannig að mars mánuður verður ein skemmtun út í gegn :D  JEY!!!!

hey og svo má ég auðvitað ekki gleyma því að ég og Oddur erum búin að bóka sumarfríið okkar... og það verður sko KRÍT BABY!!!! í þrjár vikur.... þvílík sæla verð ég að segja... og mig hlakkar ekkert nema bara smá mikið til þar sem þetta verður bara gaman og góð hvíld :D hlakka til svo mikið...

DAM IT!!!!! var að fatta það núna að ég verð á Krít þegar Húnavakan er.... andskotans djéskoti.... :(  BÖMMER DAUÐANS Í GANGI NÚNA!!!!!! ojæja... you can't have it all..... eða segjir fólk það ekki annars... you get sum and you loose sum :(  life is a bitch, get used to it :(

anyway.... þá hef ég eiginlega ekki mikið meira að segja í bili elsku skonsurússlurassasnúllurnar mínar....

kveð í bili
Gautzenin er yfir og út í bili ;)

Góður dagur í dag

11. febrúar 2008 klukkan 18:58

Sæl verið þið yndislegu kótiletturnar mínar

geggt góður dagur í dag.... vitit af hverju...??? viljiði geta???
hélt ekki... hehe

en allavega þá er ONE TREE HILL að byrja aftur í kvöld... JEY... eini gallinn er sá að ég get ekki horft á þættina með henni Signýju minni, sem er slæmt þar sem hún er alveg jafn hooked á þessum þáttum og ég... en þá er bara spurning um að taka upp tólið og bjalla í hana þegar þættirnir eru í gangi....


en allavega þá hef ég eiginlega ekki mikið að segja núna þar sem maður gerir eiginlega það sama alla daga.... sum sé vinna og sofa....


hins vegar var frekar fúllt að missa af þorrablótinu heima, hefði alveg verið til í að mæta á það og skemmta mér með vinum mínum sem eru fyrir norðan :(

en svona er þetta, maður getur víst ekki fengið allt... því er nú verr og miður verð ég að segja :D


en allavega þá hef ég ekkert meira að segja, þetta er frekar aumingjalegt blogg hjá mér en það verður bara að hafa það... skrifa vonandi meira og eitthvað seiðandi næst....


see ya later or hear you later :D


...Gautzen...

Með sorg í hjarta og tár á hvarmi.

24. janúar 2008 klukkan 21:27

ATHUGIÐ!!
ÞIÐ SEM ÞEKKIÐ MIG EKKI NEITT ERUÐ VINSAMLEGAST BEÐIN UM ÞAÐ AÐ SLEPPA ÞVÍ AÐ KOMMENTA HJÁ MÉR TIL ÞESS EINS AÐ DRULLA YFIR MIG OG HVERNIG MÉR LÍÐUR, VIL ÉG BENDA ÞEIM Á SEM HUGSUÐU UM AÐ GERA ÞAÐ AÐ ÉG BIÐ ÞÁ EKKI UM AÐ LESA BLOGGIÐ MITT EÐA TJÁ SIG Á ÞESSARI SÍÐU MEÐ EINUM EÐA ÖÐRUM HÆTTI!!!!
---------------------------------------------------------------


Eins og flestir sem lásu fréttirnar á þriðjudags kvöldið vita þá fannst Heath Ledger látinn á heimili sínu í Soho þennan dag....

Þegar Oddur sagði mér þetta þá fannst mér, ég veit að þetta er heimskulegt but so be it, eins og ég hefði misst einhvern sem ég þekkti..... einhvern sem stæði nálægt mér persónulega..... ætli meginástæðan sé ekki sú að ég sá hann fyrst leika þegar ég var 12 ára gömul..... í þáttunum "Roar" sem sýndir voru á RÚV við mikinn fögnuð hjá mér.

Síðan þá hef ég fylgst með honum, sum sé í 10 og 1/2 ár takk fyrir takk.... þannig að það er kannski ekkert skrítið að mér hafi fundist ég þekkja hann.....

en allavega þá ákvað ég að setja saman lista yfir þær myndir og þætti sem hann hefur leikið í:

Kvikmyndir:
Clowning around 1992
Blackrock 1997
Paws 1997
10 things I hate about you 1999
Two hands 1999
The Patriot 2000
A Knight's Tale 2001
Monster's Ball 2001
The Four Feathers 2002
Ned Kelly 2003
The Order 2003
Lord's og Dogtown 2005
The Brother's Grimm 2005
Brokeback Mountain 2005
Casanova 2005
Candy 2006
I'm not there 2007
The dark Knight 2008

Eins og þið sjáið þá hefur hann leikið í ansi góðum myndum, hvort sem átakanleg hlutverk eins og í Brokeback Mountain eða í unglingaveilu í 10 things I hate about you þá er án efa mikill missir í honum.  En eins og máltækið segjir þá tekur Guð fyrst þá sem hann elskar mest.  Allavega þá mun ég sakna hans mikið í kvikmyndaiðnaðinum og mun biða spennt eftir því að sjá nýjustu Batman myndina.  En tökum á þeirri mynd var nýlokið þegar hann lést.

En þá koma sjónvarpsþættir sem hann hefur leikið í:

"Home and away" 1988

"Ship to shore" 1993
"Sweat" 1996
"Roar" 1997-2000

Þannig að ég ætla að biðla til þeirra sem þekkja mig og vita alveg hvernig manneskja ég er að ef viðkomandi á einhverjar kvikmyndir eða þætti sem Heath Ledger hefur leikið í þá þigg ég það með þökkum ef þið viljið gefa mér það þar að segja.

En ég ætla að segja þetta gott í bili en ég mun aldrei gleyma þessum mætamanni og minningin um hann mun lifa um alla tíð í myndunum hans og í dóttur hans.

Veriði sæl í bili
Gautzen Gráta

Er ég kem heim í Langadal....... and so on :D

22. desember 2007 klukkan 00:14
Nei hellú everybody..... zup???

En ég er komin heim í Dósarcity og gettóið þar eins og þið flest öll vitið en ég ákvað samt að setja nokkrar línur allavega fyrir þá sem vissuð það ekki.... awww ég er svo góð við ykkur rúslurnar mínar að það er alveg barasta bara brilliant :D

Nú svo ég segji aðeins hvað er búið að ganga á hjá mér síðan ég bloggaði síðast:

nr.1 Ekkert

jæja þá er það komið :D

segji nú bara svona..... en allavega þá er ekki beint mikið búið að ganga á hjá mér síðan síðast.... nema þá einna helst það að í dag pantaði ég í síðasta skiptið mjólk og osta í vinnunni.... og þvílík athöfn við það verð ég að segja.... liggur við að ég eigi eftir að sakna þess smá..... en samt ekki.... en jú eiginlega..... æi ég veit það ekki :/   læt ykkur vita þegar ég er búin að ákveða mig....

Nú en allavega var mikið grátið, knúsast og kvatt í dag þegar ég var að fara heim þar sem ég verð í fríi í vinnunni fram yfir áramót.... so sweet verð ég að segja..... 12 dagar þar sem ég mun ekki gera neitt nema sofa, borða, sofa, slappa af, sofa og borða svo meira og þvílík sæla og tilhlökkun sem er búin að vera í gangi hjá mér í vikunni yfir því að vera bara að fara heim til að slaka á.

nú svo á morgun er ansi bissí dagur hjá mér, fer á Krókinn með Oddi til að keyra á móti mömmu hans svo hann geti verið heima þar um jólin :D  ég er svo góð að það er alveg brilliant :D  svo verður líka farið heim í sveitina á heimleiðinni til að fara með jólapakkana og tala svo mikið við dýrin.... sakna þeirra svo mikið að það er ekki einu sinni broslegt..... og það verður svo æðislega æðislegt að það er alveg yndislegt :D

svo verð ég eiginlega að láta fylgja að ég er veik... old news..... I know..... en allavega þá eru síðustu tveir dagar búnir að vera ansi ömulegir verð ég að segja.... ég er búin að vera að drepast í hálsinum, hausnum, með hósta og kvef dauðans.... ekki gaman..... en það er ekki eins og það er eitthvað nýtt hjá mér.... Gautzenin veik..... frekar leiðinlegt en ég virkilega vona að ég verði búin að ná mér áður en jólin verða.... er ekki alveg beint það allra skemmtilegasta að vera fárveik yfir jólin.... gerði það í fyrra og verð að segja að það er frekar leiðinlegt.... mæli alla vega ekki með því....

hins vegar þá hef ég ekki svo mikið að segja annað í bili, nema þá kannski einna helst að ég fór á Jólahlaðborð um síðustu helgi á Fjörukránni með vinnunni og það var bara gaman.... ég verð eiginlega að setja inn smá setningar sem sungnar voru ansi mikið það kvöld;  ,,HÚN ER FALLIN, HÚN ER FALLIN, FALLIN SPÝTAN, AAAAAAAAAAAAAAA!!!!!!!!!!!!! vá hvað þetta var fyndið en allavega þegar maður er vel drukkinn og eitthvað fyndið gerist þá er þetta bara alveg brilliant fyndið..... en allavega ég veit að þetta er frekar mikill einkahúmor en þeir sem ég vinn með og lesa þetta fatta þetta og brosa án efa :D

en ég læt þetta duga í bili elskurnar mínar

Gautzenin kveður í bili úr gettóinu í Dósarcity

Þið eigið aldrei eftir að trúa því hvað stendur hérna fyrir neðann :D

03. desember 2007 klukkan 22:57
Sæl verið þið mitt góða og kæra fólk....

eins og þið hafið kannski tekið eftir þá áttum ég og Oddur ársafmæli á laugardaginn var og við vildum bara koma því á framfæri að blómar og kransar eru afþakkaðir en áfengi og fjárframlag er vel þegið Hlæjandi

en þá er það komið sem ég ætlaði að koma á framfæri núna í dag.... þannig að hafiði það gott öll sem eitt...

...Gautzen...







He he he.... suckers.... náði ykkur.... vá hvað ég er fyndin manneskja.... þótt ég segji sjálf frá Hlæjandi

en allavega þá eru aðeins stærri og margfalt frábærri fréttir sem ég get sagt ykkur einnig... allavega þið sem eruð ekki búin að frétta þetta þar að segja..... en allavega þá er ég ólétt!!!



hehehehe....suckers..... náði ykkur aftur.... ég er alveg að missa mig núna held ég bara.... en svo ég tali nú í alvöru þá eru fréttirnar þær að ég og Oddur trúlofuðum okkur á laugardaginn var þannig að ég er alveg við það að springa úr hamingju núna.... og svo erum við bara að bíða eftir því að fá hringingu frá gullsmiðinum um að hringarnir séu tilbúnir, það er verið sum sé að grafa í þá og setja 5punkta demant í minn, og þá getum við farið og sótt þá Koss

Þannig að eins og gefur að skilja þá er mikil hamingja í gangi núna í Kópavoginum... þannig að þar hafið þið það litlu skonsurnar mínar....

síðan verð ég eiginlega að setja inn smá tilvísun í hana Moniku okkar úr Friends... ,,I'M ENGAGED!!!!" en ég mun setja mynd af hringunum þegar við verðum búin að fá þá í hendurnar sem ætti að vera á morgun eða miðvikudaginn.... get ekki beðið...

en þá er allavega mest allar fréttirnar komnar af mér í bili þannig að ég bið að heilsa ykkur elskurnar mínar í bili...

með kveðju úr bænum

...Gautzen....

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan